Erlendar úttektir korthafa eru umreiknaðar beint úr kauplandsmynt yfir í íslenskar krónur á því gengi sem í gildi er hjá VISA International á þeim degi sem úttektin berst frá seljanda. Algengt er að erlendar færslur berist VALITOR frá seljanda nokkrum dögum eftir kaupdag. Einnig ber að hafa í huga að bankafrídagar hérlendis eru ekki endilega frídagar erlendis og breytingar geta orðið þá daga á gengi krónunnar þó upplýsingar um það komi ekki fram t.d. á heimasíðum bankanna.

Kreditkort er greiðslumiðill líkt og seðlar. Samanburðarhæft gengi er að öllu jöfnu seðlagengi banka og sparisjóða.

Athugið að gengi færslu getur verið annað en fram kemur í töflunni ef sú mynt sem notuð er í viðskiptum er önnur en heimamynt kauplands. Það getur t.d átt við ef keypt er fyrir dollara í Bretlandi eða evrur í Bandaríkjunum.

Upplýsingar um gengi helstu gjaldmiðla í viðskiptum eru uppfærðar þriðjudaga, miðvikudaga, fimmtudaga, föstudaga og laugardaga. Uppfærsla getur raskast ef um innlenda eða erlenda frídaga er að ræða.

Síðast uppfært: 22.02.2012.

Gjaldmiðill Heiti Gengi
Arabískt dírhamAED34,9865
Ástralskur dalurAUD137,9396
BandaríkjadalurUSD126,0312
BatTHB4,1965
Dönsk krónaDKK22,6422
EvraEUR167,7936
FórintaHUF0,595
Hong Kong dalurHKD16,5714
Íslensk krónaISK1
Japanskt jenJPY1,5942
JúanCNY20,4613
KanadadalurCAD127,6283
KúnaHRK22,4862
LatLVL244,58
LefBGN87,1616
LítLTL49,3822
Norsk krónaNOK22,3393
RandZAR16,8538
Rússnesk rúblaRUR4,3224
Sænsk krónaSEK19,0969
SterlingspundGBP199,0803
Svissneskur frankiCHF139,6035
Tékknesk krónaCSK6,8593
Tyrknesk líraTRY73,8817
ZlotyPLN40,8567